Stofnum hug­búnaðar­klasa í Kópa­vogi

Hugbúnaður, smáforrit, tölvuleikir og margs konar stafrænar lausnir eru fyrir löngu orðnar hluti af tilveru okkar allra og þáttur þeirra vex hröðum skrefum. Hugbúnaðargerð er orðin mikilvæg atvinnugrein á Íslandi og mun ef vel tekst til, verða ein af grunnstoðum efnahags þjóðarinnar. Mikil eftirspurn er eftir starfsfólki með þekkingu á hugbúnaðargerð því allar framsæknar þjóðir keppast nú við að styrkja stöðu hugbúnaðargeirans hjá sér. Efnahagslegt mikilvægi hugbúnaðar og stafrænnar þróunar fer hratt vaxandi og til dæmis er tölvuleikjaiðnaðurinn er orðinn stærsti afþreyingariðnaður heimsins.

Jákvæðir þættir atvinnuuppbyggingar í hugbúnaðariðnaði á Íslandi eru fjölmargir og vil ég nefna nokkra:

Vel launuð störf

Hugbúnaðariðnaður skapar verðmæt störf fyrir fólk með fjölbreytta menntun og færni. Augljóslega byggir hún á störfum forritara og tölvunarfræðinga en einnig hönnuða, viðskiptafræðinga, markaðs- og sölufólks og fleiri sérfræðinga.

Störf á landsbyggðinni

Greinin býður upp á störf án staðsetningar og getur þannig styrkt fjölbreytni æi störfum á landsbyggðinni. Í mörgum tilfellum getur starfstöðin verið eitt skrifborð og tölva með góðri nettengingu. Slík störf henta einnig vel þeim sem þurfa að flytja sig um set eða kjósa að búa erlendis um skemmri eða lengri tíma.

Umhverfisvæn stóriðja

Hugbúnaðargerð er umhverfisvæn vegna þess að hún krefst ekki notkunar á hráefnum. Fjarvinnumöguleikar minnka neikvæð áhrif umferðar- og/eða útblásturs vegna ferða starfsfólks til og frá vinnu. Ennfremur skapar útflutningur afurða lítið kolefnisspor vegna þess að hugbúnaður er fluttur á markað um internetið.

Góð samkeppnisstaða

Samkeppnishæfni Íslands er einkar góð á þessu sviði því flutningskostnaður sem óhjákvæmilega fylgir framleiðslu áþreifanlegra vara er ekki til staðar eða er mjög óverulegur við hugbúnaðarframleiðslu.

Stofnum hugbúnaðarklasa

Ég vil að stefnt verði að stofnun hugbúnaðarklasa í bænum. Hentug staðsetning klasans væri í nágrenni Hamraborgar eða á Kársnesi því Borgarlína mun tengja þau svæði við háskólana um Fossvogsbrú.

Hugbúnaðarklasi yrði deigla nýsköpunar í hugbúnaði og stafrænum lausnum þar sem fyrirtæki nytu stuðnings hvert af öðru, samnýtingar aðstöðu og búnaðar og nálægðar við fræðasamfélagið í háskólunum.

Ég vil einnig að aukin áhersla verði á kennslu í hugbúnaðargerð og stafrænum lausnum í grunnskólum Kópavogs og að börnum og unglingum standi til boða sumarnámskeið tengd forritun og hugbúnaðarþróun í samstarfi við fyrirtæki í geiranum.

Ef vel tekst til getur hugbúnaðarklasi í Kópavogi orðið mikilvæg stoð við uppbyggingu þessa framtíðariðnaðar og leitt af sér mörg og áhugaverð störf í Kópavogi og um allt land.

Erlendur Geirdal skipar 3ja sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Kópavogi.

Gunnar Gylfason