Framboðslisti Samfylkingarinnar í Kópavogi Samþykktur
Á félagsfundi Samfylkingarinnar í Kópavogi í gær var listi flokksins til bæjarstjórnarkosninga samþykktur einróma.
Ég er afar ánægð með skipan listans sem er skipaður öflugu fólki sem er tilbúið til að vinna af heilindum fyrir íbúa Kópavogs segir Bergljót Kristinsdóttir nýr oddviti listans.
"Kópavogur er á tímamótum. Kosningarnar í vor eru gríðarlega mikilvægar og tekist er á um grundvallaratriði um framtíð bæjarins. Samfylkingin kemur mjög sterk til kosningabaráttunnar með skýra sýn á hvernig samfélag við viljum byggja upp eftir nánast þriggja áratuga setu helmingaskiptaflokkanna við stjórnun bæjarins. Gildir það um skipulagsmál þar sem horfið er frá verktakaræði en áherslur verða á samráð og íbúalýðræði. Þá munum við efla samstarf við félaga- og íbúasamtök en það hefur lítið farið fyrir slíku hjá núverandi meirihluta. Þá leggjum við áherslu á mennta- og velferðarmál auk umhverfismála í anda klassískrar jafnaðarstefnu sem er leiðarstefið í okkar baráttu" segir Bergljót Kristinsdóttir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi
Listann skipa:
Bergljót Kristinsdóttir Bæjarfulltrúi
Hákon Gunnarsson Rekstrarhagfræðingur
Erlendur Geirdal Rafmagnstæknifræðingur
Donata Bukowska Kennsluráðgjafi
Hildur María Friðriksdóttir Náttúruvársérfræðingur
Þorvar Hafsteinsson Framkvæmdastjóri
Kristín Sævarsdóttir Vörustjóri
Steini Þorvaldsson Rekstrarfræðingur
Margrét Tryggvadóttir Rithöfundur
Sigurður M. Grétarsson Sérfræðingur hjá TR
Alma Martines Sálfræðingur
Tómas Þór Tómasson MBA
Þóra Marteinsdóttir Tónlistarkennari
Freyr Snorrason Sagnfræðingur
Hjördís Erlingsdóttir Þjónustustjóri
Róbert Karol Zakariasson Myndlistarmaður
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir Laganemi
Pétur Hrafn Sigurðsson Bæjarfulltrúi
Flosi Eiríksson Framkvæmdastjóri SGS
Ýr Gunnlaugsdóttir Viðburðastjóri
Hafsteinn Karlsson Skólastjóri
Rannveig Guðmundsdóttir F.v. ráðherra