Niðurstöður í flokksvali Samfylkingarinnar í Kópavogi
Flokksvali Samfylkingarinnar í Kópavogi lauk kl. 16.00 í dag. Alls tóku 311 þátt í flokksvalinu. Niðurstöður flokksvalsins eru bindandi fyrir fjögur efstu sætin.
Féllu atkvæði þannig
Bergljót Kristinsdóttir fékk 160 atkvæði í fyrsta sæti
Hákon Gunnarsson fékk 167 atkvæði í fyrsta til annað sæti
Erlendur Geirdal fékk 187 atkvæði í fyrsta til þriðja sæti
Donata H. Bukowska fékk 194 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti
Mynd: frá vinstri. Donata Bukowska, Hákon Gunnarsson, Bergljót Kristinsdóttir, Erlendur Geirdal.
F.h. kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Kópavogi
Pétur Hrafn Sigurðsson