Aðalfundur Húsfélags Samfylkingarinnar í Kópavogi
Ágæti félagi
Aðalfundur Húsfélags Samfylkingarinnar í Kópavogi verður haldinn mánudaginn 29. mars kl. 20 í Hlíðasmára 9. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Stjórn Húsfélags Samfylkingarinnar í Kópavogi skipa:
Steingrímur Steingrímsson formaður
Ýr Gunnlaugsdóttir gjaldkeri
Stefán Ólafsson ritari
Allir félagsmenn Samfylkingarinnar í Kópavogi hafa rétt til fundarsetu en vegna takmarkana á samkomuhaldi og kröfum um fjarlægð milli fundargesta eru þau sem hyggjast sitja fundinn beðin að staðfesta það með því að senda tölvupóst á betrikopavogur@gmail.com a.m.k. viku fyrir fundardag.